Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.
Félagsvísindasvið
Heilbrigðisvísindasvið
Hugvísindasvið
Menntavísindasvið
Verk- og náttúruvísindasvið

Það er hlutverk Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands að stuðla að hagnýtingu þekkingar og rannsóknaniðurstaðna úr háskólasamfélaginu. Rannsóknaþjónustan vinnur að þessu stóra verkefni í samstarfi við fjölmarga aðila. Helstu verkefni Rannsóknaþjónustunnar á þessu sviði eru eftirfarandi:
Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands, áður „Uppúr skúffunum“, hafa verið veitt frá árinu 1998. Markmið samkeppninnar er að laða fram hagnýtanlegar rannsóknir og hugmyndir sem orðið hafa til innan háskólans og Landspítala. Samstarfsaðilar Rannsóknaþjónustunnar eru skrifstofa rektors, vísindasvið, kynningarsvið, Tæknigarður, Einkaleyfastofan og Arnason|Faktor.
Hugverkanefnd Háskóla Íslands og Landspítala sér um að framfylgja því verklagi sem stofnanirnar hafa sett sér varðandi hagnýtingu þekkingar. Starfsmönnum háskólans og Landspítala ber að huga að mögulegri hagnýtingu niðurstaðna af þeim rannsóknum er þeir stunda. Telji starfsmaður að uppfinning/nýjung geti leitt af sér einkaleyfi eða hagnýta megi þær með öðrum hætti skal hann koma upplýsingum þar að lútandi á framfæri við Hugverkanefnd. Með nefndinni starfa starfsmenn Rannsóknaþjónustunnar.
Upplýsingasetur um einkaleyfi er samstarfsverkefni Rannsóknaþjónustunnar og Einkaleyfastofunnar, sem fór formlega af stað í ársbyrjun 2006. Upplýsingasetrið hefur það verkefni að veita almennar upplýsingar um einkaleyfi og önnur hugverkaréttindi og aðstoða við fyrstu leit í opinberum gagnabönkum um einkaleyfi.
Tækniþróun hf. er fjárfestingarfyrirtæki í eigu Háskóla Íslands og nokkurra fjárfesta og fyrirtækja. Starfsemi Tækniþróunar hefur undanfarin ár einskorðast við umsjón með eignarhlutum félagsins í fyrirtækjum. Rannsóknaþjónustan sér um rekstur Tækniþróunar hf.
Tæknigarður hf. er í eigu Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og fleiri aðila og þar hefur verið nýsköpunarsetur Háskólans frá 1988. Á þeim tíma hafa nærri 100 fyrirtæki verið um lengri eða skemmri tíma í húsinu. Rannsóknaþjónustan sér um rekstur Tæknigarðs hf.
Evrópumiðstöð Impru er hluti af neti nýsköpunarmiðstöðva Evrópusambandsins. Rannsóknaþjónustan er tengiliður Evrópumiðstöðvarinnar við Háskóla Íslands.