Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands

evrópusamvinna logo

Styrkjadagatal

Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.


Leit að samstarfsaðilum



Leit að samstarfsaðilum og aðstoð við tengslamyndun

Rannsóknaþjónustan aðstoðar starfsmenn háskólans við leit að samstarfsaðilum hvort sem um er að ræða til frekari rannsókna eða til þróunar og hagnýtingar rannsóknaniðurstaðna. Rannsóknaþjónustan sinnir sérstaklega og með skilgreindum hætti leit að evrópskum samstarfsaðilum vegna umsókna um styrki í evrópskar samstarfsáætlanir. Er þar notast við sérstaka gagnabanka CORDIS og Menntaáætlana ESB sem starfsfólk hefur aðgang að og þjálfun í að nota. Leit að innlendum samstarfsaðilum fer fram með þeim hætti sem best á við í hverju tilviki. Rannsóknaþjónustan veitir ráðgjöf um hvers konar samstarf kunni að vera æskilegt og aðstoðar við fyrstu samskipti milli aðila, sé þess óskað, en það er á ábyrgð þeirra sem eftir samstarfsaðilum sækjast að ganga frá formi og innihaldi samstarfsins. Einnig aðstoðar Rannsóknaþjónustan fyrirtæki sem óska eftir samstarfi við Háskólann, hvort sem um er að ræða samstarf eða kaup á þjónustu.