Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands

evrópusamvinna logo

Styrkjadagatal

Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.


Meginstraumar þekkingarsamfélagsins



Á starfsvettvangi Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands mætast þrír meginstraumar samtímans, sem eru áhersla á þekkingu, nýsköpun og alþjóðlegt samstarf:

  • Þekking er undirstaða þróunar samfélagsins og möguleikar einstaklinga og stofnana ráðast af getu þeirra til að tileinka sér þekkingu og að nýta hana. 
  • Hagnýting þekkingar og nýsköpun eru meginforsenda áframhaldandi efnahagslegrar velmegunar og um leið frekari þróunar samfélagsins.
  • Alþjóðlegt samstarf skiptir höfuðmáli varðandi öflun, miðlun og hagnýtingu þekkingar.

Rannsóknaþjónustan var stofnuð árið 1986, þegar þessir þrír straumar voru ekki eins sýnilegir og þeir eru í dag. Markmið stofnunarinnar hefur frá upphafi verið að styrkja tengsl Háskóla Íslands við umhverfi sitt á fjölmörgum vígstöðvum. Tilgangurinn hefur ávalt verið að styðja við íslenskt atvinnulíf og samfélag og styrkja um leið starfsemi Háskóla Íslands og raunar háskóla og framhaldsskóla almennt. Frá 1991 hefur þátttaka í evrópsku samstarfi verið eitt meginstefið í starfsemi stofnunarinnar. Rannsóknaþjónustan starfar á grundvelli reglna sem samþykktar voru í háskólaráði 18. maí 2010 og birtar voru í Stjórnartíðindum 4. júní 2010.

Sameiginlegt markmið starfsmanna er að byggja upp öfluga þjónustustofnun sem stutt getur við þróun þekkingarsamfélags á Íslandi. Framúrskarandi þjónusta er leiðarljós starfsmanna Rannsóknaþjónustunnar. Þannig tekur starfsfólk ábyrgð á eigin framtíð og starfsframa, tryggir vöxt og viðgang stofnunarinnar og tekur virkan þátt í framþróun þess samfélags sem við erum hluti af.