Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.
Félagsvísindasvið
Heilbrigðisvísindasvið
Hugvísindasvið
Menntavísindasvið
Verk- og náttúruvísindasvið

Þjónusta við landsbyggðina
Rannsóknaþjónustan hefur frá upphafi stutt við tengsl Háskóla íslands við landsbyggðina með samstarfi, stuðningi og beinni þátttöku í margvíslegum verkefnum. Fastur listur í starfseminni er aðstoð og ráðgjöf við Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands á ýmsum sviðum, m.a. í tengslum við erlend samstarfsverkefni sem setrin hafa átt aðild að.
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands er rannsókna- og þjónustustofnun sem heyrir undir Háskólaráð. Stofnunin byggist á rannsóknasetrum Háskóla Íslands á landsbyggðinni sem eru faglega sjálfstæðar einingar. Stofnunin er vettvangur samstarfsverkefna Háskólans við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni. Markmið stofnunarinnar er enn fremur að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni, auka möguleika almennings til menntunar og styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf.
Forstöðumenn og sérfræðingar setranna eru virkir í alþjóðlegu samstarfi í sérgreinum sínum. Aðaláherslan er á rannsóknastarfið en setrin hafa einnig tekið þátt í verkefnum sem tengjast miðlun þekkingar, umgengni við náttúruna, samfélagslegu hlutverki, nýsköpun og fleiru.
2005-2007 leiddi Rannsóknaþjónustan evrópska samstarfsverkefnið INTRO þar sem markmiðið var að miðla reynslu sem orðið hafði til hjá rannsóknasetrunum af svæðisbundnu samstarfi um þekkingaruppbyggingu milli Íslands, Írlands, Póllands og Lettlands. Verkefnið var styrkt af nýsköpunaráætlun ESB í FP6.
NEST (Northern Environment for Sustainable Tourism) var evrópskt samstarfsverkefni 2004-2007 um sjálfbæra ferðamennsku á norðurslóðum og möguleika þjóðgarða og friðlýstra svæða til framþróunar byggðar á jaðarsvæðum. Þátttökulönd eru auk Íslands, Finnland, Svíþjóð og Skotland. Verkefninu var stýrt af Háskólasetrinu á Hornafirði (Rannsóknasetri HÍ á Hornafirði) en Rannsóknaþjónustan var þátttakandi og aðstoðaði við að móta verkefnið og afla því stuðnings hjá Norðurslóðaáætlun ESB.
Setrið á Höfn stýrði einnig verkefninu Northern Environmental Education Development project, NEED, sem á íslensku mætti þýða sem Uppbygging náttúruskóla og umhverfismenntar á norðurslóðum. NEED var fjölþjóðlegt samstarfsverkefni Íslendinga, Finna, Norðmanna og Íra, og var Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (Northern Periphery Programme 2007-2013) aðalstyrktaraðili þess. Markmið verkefnisins var að þróa nýjar og frumlegar aðferðir til þess að miðla þekkingu um umhverfi og náttúru friðlýstra svæða til þeirra ferðamanna, nemenda og annarra aðila sem sækja þau heim eða búa í nágrenni þeirra. Vatnajökulsþjóðgarður var miðpunktur verkefnisins hér á landi.
Rannsóknasetur HÍ á Húsavík og Rannsóknasetur HÍ á Vestfjörðum tóku þátt í samnorrænu verkefni um þróun sjálfbærrar náttúruferðamennsku á norðurslóðum. Verkefnið nefndist Hið villta norður / The Wild North og var styrkt af Norðurslóðaáætlun ESB. Aðrir íslenskir þátttakendur voru fyrirtæki sem sérhæfa sig í náttúrulífstengdri ferðaþjónustu, rannsóknastofnanir og opinberir aðilar en auk Íslands áttu Norður-Noregur, Grænland og Færeyjar aðild að verkefninu.