Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.
Félagsvísindasvið
Heilbrigðisvísindasvið
Hugvísindasvið
Menntavísindasvið
Verk- og náttúruvísindasvið

Þjónusta við þekkingarsamfélagið
Rannsóknaþjónusta Háskólans leggur áherslu á þjónustu sem lýtur að öflun styrkja úr samkeppnissjóðum, samstarf háskólafólks við aðila utan stofnunarinnar og hagnýtingu á þeirri þekkingu, reynslu og rannsóknaniðurstöðum sem er til staðar innan háskólasamfélagsins.
Sérstaklega býðst starfsfólki eftirfarandi:
Umfang þjónustu við starfsmenn Háskóla Íslands
Rannsóknarþjónustan veitir öllum starfsmönnum Háskólans ráðgjöf og aðstoð innan þeirra marka sem fjárveiting skólans til stofnunarinnar leyfir. Almennt er miðað við ráðgjöf í 4 til 20 klst. eftir umfangi verkefna. Sé þörf á umfangsmeiri aðstoð þarf að semja um það sérstaklega.
Nemendur fá sömu þjónustu og starfsmenn
Nemendur Háskóla Íslands eru einnig starfsmenn hans í þeim skilningi að þeim stendur til boða sama þjónusta og starfsmönnum varðandi sókn í samkeppnissjóði um rannsóknastyrki og stofnun sprotafyrirtækja. Í nær öllum tilvikum þegar stofnuð hafa verið sprotafyrirtæki á grundvelli rannsókna við Háskóla Íslands og stofnanir hans hafa nemendur komið þar við sögu. Til viðbótar þessu leggur Rannsóknaþjónustan sitt af mörkum með tvennum hætti:
Aukning í fjölda meistara- og doktorsnema leiðir eðlilega til aukinnar eftirspurnar eftir styrkjum, bæði almennum framhaldsnámsstyrkjum og rannsóknastyrkjum sem sérstaklega eru ætlaðir framhaldsnemum. Á vef um samkeppnissjóði eru upplýsingar fyrir meistara- og doktorsnema með yfirliti yfir helstu sjóði og styrkjamöguleika.
Landsskrifstofa Menntaáætlunar ESB veitir styrki til háskólanema og þeirra sem eru nýútskrifaðir til að fara í starfsþjálfun sem er annað hvort hluti af námi eða kemur í beinu framhaldi af því og nýtist til að byggja upp starfshæfni viðkomandi.